Pantanir: Við hjá Fyrirmynd tökum við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Greiðsla: Hægt er að greiða allar pantanir með korti í gegnum MyPos, aðrir greiðslumátar eru Aur, Netgíró og Pei.
Þú samþykkir að veita núverandi, heilar og nákvæmar upplýsingar fyrir öll kaup sem gerð eru í versluninni, þar á meðal netfangið þitt, kreditkortanúmer og gildistíma, svo að Fyrirmynd geti lokið viðskiptum þínum og haft samband við þig eftir þörfum.
Sendingarmáti: Pantanir eru sendar með Íslandspósti. Fyrirfram ákveðið sendingargjald leggst aukalega ofan á verð vöru, ef senda á heim. Frítt er að senda á næsta pósthús eða í póstbox.
Það tekur allt að 1-2 virka daga að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 2-3 virkir dagar.
Hjá okkur gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru, utan höfuðborgarsvæðisins.
Vöruskil: Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún gölluð eða ekki samkvæmt pöntun. Tilkynna skal vöruskil á info.fyrirmynd@gmail.com. Boðið er upp á inneignarnótu eða endurgreiðslu. Athugið að þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Fyrirmyndar.
Hafi viðskiptavinur fengið skemmda eða ranga vöru, ber honum að upplýsa Fyrirmynd um það við fyrsta tækifæri og mun Fyrirmynd taka fulla ábyrgð á því.
Fyrirvari: Við áskiljum okkur rétti til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndbrengl. Fyrirmynd áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé ranglega verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.
Trúnaður: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Lög og varnarþing: Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum, gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Fyrirmyndar og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Upplýsingar um seljanda: www.fyrirmynd.is er rekið af Aura ehf.